Daginn,
Ég er búin að vera að passa hund fyrir vin minn þegar hann er að vinna en mamma vinar míns á hana og er erlendis.
Þessi tík tók upp á því að vera alltaf að urra á mig þegar ég kom hingað núna á laugardaginn… þá er ég að tala um að henni líkað ekki hót við mig… ég tók uppá því að urra á hana til baka en þá hætti hún þessum látum.
Ég er búin að vera að fara með hana út á hverjum degi síðan og það virðist sem henni líki núna rosalega vel við mig, er orðin mér húsbóndaholl og liggur alltaf við fætur mér… er eiginlega komin með áhyggjur hvort að hún sé mér orðin of tengd því að eigandinn er að fara að koma heim.
Þessi vinur minn sem bað mig um að vera að passa hana líka ekki neitt rosalega vel við Töru(tíkina)og kannski er það ein ástæða þess að hún hefur hænst svona rosalega að mér… sem mér finnst alls ekki slæmt það sem ég er úr sveit og elska dýr :D
Bara smá spekúleringar með þetta því að ég er líka algerlega fallin fyrir tíkinni :D
Kv.