Þú getur byrjað á því að loka hann inni í herbergi í pínulítinn tíma og komið svo aftur strax inn og hrósað honum fyrir að vera góður og svo æfiru þetta bara og verður alltaf lengur og lengur í burtu í senn. Passaðu þig samt á því að þegar þú ert að æfa hann í þessu að opna aldrei þegar hann er að væla. Þegar hann hættir að væla þó það sé bara nokkrar sek. þá er best að fara inn og hrósa honum og gefa honum nammi.
Þegar þetta er komið og hann er búin að læra að þú kemur alltaf aftur þó að þú lokir hann inni að þá á þetta að fara lagast.
Gangi þér vel<br><br>Kveðja Sigga
————————————————
Stundaðu vinnu þína eins og þú þurfir ekki á peningunum að halda.
Elskaðu eins og þú hafir aldrei verið særð/ur.
Dansaðu eins og enginn sjái til þín.