Ég er kominn með hundaæði! Alla daga er ég suðandi í mömmu og pabba um að ég fái hund. Ég segi alltaf: Má ég fá Chihuahua hund. Þá segir mamma kannski: “Við verðum að hugsa málið”. Þá fer ég til pabba og spyr sömu spurninguna.
Ég fæ örugglega hund í vor því ef við mundum fá hann núna væri aldrei neinn heima til að sjá um hann á daginn því að ég og mamma erum í skóla og pabba er í vinnunni sinna og ekki getum við skilið hundinn eftir einan meðan að hann er lítill.
Alltaf þegar ég er í tölvunni og er kannski á huga þá fer ég á heimasíðu sem heitir www.google.com og þar skoða ég myndir af hundum og aftast Chihuahua hunda því að það eru uppáhalds hundarnir mínir.
En það mun koma að því að ég fái hund og þá mun ég ekki gera neitt annað en það vera með honum og dekra við hann allan daginn.
Kveðja Birki