Ég get því miður ekki tekið hann en mig langaði bara að segja að þessar blöndur eru mjög oft (ef ekki alltaf ;D) algjört æði!!
Ég á svona blending og þekki marga aðra eins blendinga og þeir eru allir svo góðir, yfirvegaðir, skemmtilegir, fallegir og flestir ef ekki allir mjög barngóðir. Feldurinn á íslenskum og Labrador hundum er auk þess mjög þægilegur, svo sjálfhreinsanlegur eitthvað hjá báðum tegundum þannig að sama hvor feldinn hvolpurinn fær (eða hvort hann fær blandaðann feld eins og mín) báðar gerðir eru frábærar.
Mér finnst 13 þúsund ekki mjög dýrt fyrir hvolp ef fóður fylgir sérstaklega ef hann er búinn að fara í fyrstu bólusetningu (fara 2 mánaða í hana).
Vonandi finnur krúttið góða fjölskyldu til að búa hjá fljótlega ;)