Já, ég er sjálf ekki mjög hrifin af því að skottstýfa hunda.
En samt á ég skottstýfðann hund, mjög mikið stýfðann, hann er með ca 2 cm “rófu”, en ég myndi ekki vilja hafa hann öðruvísi því hann myndi moka öllu af lágum borðum ef hann væri með rófu :/
En hann getur nú hlaupir mjög hratt, og er að mínu mati með alveg fullkomið jafnvægi, ég held að það sé kettir sem missa jafnvægið ef skottið á þeim er tekið af.
Skottstýfingin sjálf er að sögn ekki sársaukamikil aðgerð, en eyrnastífing er mjög sársaukafull, og heppnast þar að auki alls ekki í 100% tilvika, og mér finnast eyrnastífðu kynin oftast mikið fallegri með “náttúrulegu” eyrun sín (td. Boxer, Great Dane, Rottweiler og Doberman)<br><br>——————————
<i>Nennir þú að rétta mér pennann ?</i