Ég á 7 ára gamla tík sem heitir Tina. Hún er mjög blíð og góð, og rosalegur “knúsuhundur”. Undanfarna daga hefur hún verið að haga sér mjög skringilega, og er eins og hún sé alltaf eitthvað hálfskömmustuleg og sækir mun meira en venjulega í knús og klapp. Síðan tók ég eftir því í gær að hún er farin að mjólka. Getur verið að hún sé (hafi verið) gerviólétt? Er eitthvað hægt að gera við því, eða klárar hún þá bara sitt ferli???