Sámur hundurinn minn er alltaf svangur, eins og flestir hundar.. og ef hann sér eitthvað sem hægt er að borða, þá fær hann sér það.. ekki spurning!
Einu sinni í afmælinu hennar mömmu.. gestirnir voru flestir farnir en þó voru nokkrir enþá inní stofu.. og kökurnar á eldhúsborðinu! Svo alltí einu uppgötvar mamma að það er ekki búið að heyrast í hundinum í dágóðan tíma, hún auðvitað stekkur beint inní eldhús, þá er minn bara búnað éta helminginn af einni súkkulaði kökunni þarna! Hann er það stór að hann getur bara teygt sig í þetta, þurfti ekkert að velta borðinu eða stökkva uppá það eða neitt.. gat bara gert þetta mjög hljóðlega =)
Þetta var alveg geðveikt fyndið.. en mömmu fanst það sko ekki.. og ekki sámi eftir að það var búið að skamma hann!