Hæ hundavinir !
Hann Strútur minn eða Dúddi eins og hann er alltaf kallaður er týndur. Hann strauk að heiman 7. mars um hádegisbilið og ég er búin að leita að honum stanslaust síðan. Hvað gerir maður í svona aðstöðu ? Ég er búin að hringja í Dýraspítalann í Víðidal og láta vita. Ég ætla að prenta út myndir af honum og hengja í búðir. Er eitthvað sem ykkur dettur í hug. Hann var ekki með ólina sína svo hann er ekki merktur en er auðvitað með merki sem dýralæknarnir settu í hann.

Með von um góð ráð fyrir hunda mömmu sem elskar voffann sinn eins og barnið sitt.

Tjallý