Það er mjög auðvelt að þjálfa Labrador og Golden Retriver.
Þeir eru samt í stærri kantinum, en ef það er vandamál í gönguferðum þá má nota svona Halti múl á þá.´
Ég átti labba/golden blöndu og var oftast með svona múl á henni þegar við fórum út að labba, hún var ekkert að toga eða vera með einhverja tilburði til þess.
Ég að vísu þekki ekki margar aðrar tegundir af eigin reynslu, en mér fannst þessi hundur minn alger perla, húsbóndaholl, fljót að læra, kát og bara hinn fullkomni heimilishundur.
Ég er að spá með þessa konu .. hvað kemst hún mikið út að labba með tilvonandi hundinn sinn ?
Labrador og Golden þurfa frekar mikla hreyfingu, helst minnst klukkutíma göngu daglega.<br><br>——————————
“Það besta sem Guð hefur skapað er …… nýr dagur”