Ég er orðin afskablega þreytt og reið á að þurfa að lesa endalaust um það að dýr séu að finnast slösuð eða dauð af mannavöldum!
Ég vil hreinlega að eitthvað verði gert til þess að herða lög um þetta. Sá sem lætur reiði sína bitna á dýri, getur allteins látið hana bitna á manneskju einn daginn..
Og það að fólk tími ekki að borga fyrir svæfingu á dýrinu sínu heldur drekkir því frekar með óhugnalegum hætti. Það er hreint ógeðslegt! Svona á ekki að viðgangast!
Ég veit um Kött sem misti skottið sitt vegna þess að Unglingar huggu það af með Steini!! Og ætli eitthvað hafi verið sagt eða gert við Unglingana á móti! Það efa ég.. en vesalings kötturinn misti þarna mikilvægan líkamspart!
Dýr hafa tilfinningar alveg eins og við mannfólkið. Það yrði nú sagt ýmislegt annað ef að þeir hefðu t.d höggvið putta af eitthverri manneskju..
Fólk mótmælir hækkun STEFgjalda.. Hefur eitthvertima eitthverjir reynt að gera eitthvað í málinu til þess að herða refsingar á Dýraníðungum? Ekki svo ég viti til! Svo nú bið ég ykkur. Gerum eitthvað í þessu!
Fólk sem gerir eitthvað svona lagað á ekki að geta gengið bara burtu eins og ekkert hafi ískorist!!