
Það sem ég er hræddastur við er að ég fái mér kannski Chihuahua hund og allt í einu vilji ég frekar Cavalier eða einhverja aðra tegund meira heldur en Chihuahua eftir að ég hef fengið mér þannig. Eins og einu sinni var Pug uppáhalds hundurinn minn, svo varð það Cavalier og núna er það annarhvort Cavalier eða Chihuahua, ég er ekki viss
Ég er reyndar búinn að fara á lista hjá ræktanda sem ræktar Cavalier hunda en ég er ekki viss hvort ég vilji fá mér núna, Chihuahua eru svo littlir og sætir að ég er að deyja að mig langar svo í svona hund svo að það gæti verið að ég muni fá mér þannig frekar en Cavalier. En ég veit ekkert um Chihuahua ræktanda og ég veit ekki hvað þeir kosta og þannig.
Svo núna er ég alveg ruglaður en ef þú hefur einhverja hugmynd hvernig ég gæti leyst þennan vandi minn láttu mig þá endinlega vita.
Kveðja Birki