Sæll/sæl. Ég er sko búinn að gera þetta sem þú nefnir, og það er alveg á hreinu að þau eru búinn að fyrirgefa rétti sínum til að vera með hundaræktun, en veistu, það er eins og enginn þori að taka af sporið og gera eitthvað, ég get ekki staðið í þessu ein, öll sú vinna sem ég hef lagt á mig er ótrúleg, en það liggur maðkur grafinn í mysunni, einhversstaðar eiga þau einhvern sem virðist geta haldið aftur að eitthvað sé að gert, samt segir þetta fólk, beint upp í andlitið á manni að þau séu búinn að brjóta lög, ég fékk mér lögfræðing, og má ekki tjá mig um einstök atriði, hann fór þangað og sagði við mig, að það sem fram fer þarna, aðstaða, og aðbúnaður, eiga ekki að sjást hér á landi, ég er þreytt, og af því að enginn er tilbúinn að gera eitt né neitt, þá ætla ég að láta hann sjá um þessi mál fyrir mig. Hvar skildu allar þær manneskjur sem fóru af stað með þetta mál og sögðu hluti sem ég ætla ekki að hafa eftir séu !!!!! eins þær sem fóru gagngert og tóku myndir sem hægt var að sjá aðbúnaðinn, hvar eru þær, ég ætla ekki að vinna sóðaskapinn fyrir þær, það er á hreinu, enginn gefur sig fram, þær liggja bara í dvala og bíða eftir nýjustu fréttum. Vona að þér líði vel í Kanada. kveðja.
Popo , the mighty one…