ok, fyrst þú vilt endilega svar….
Þessar fullyrðingar þínar eru langt frá sannleikanum og koma satt best að segja úr hörðustu átt!
Ef þú lest þá þræði sem þú eyddir ekki út sjálf sérðu vel að þar var ekkert verið að auglýsa eitt né neitt og skítkastið sá ég nú ekki annað en að kæmi frá þér og co.
Ég á alla þræðina inn í tölvunni, líka þá sem þú eyddir út! Ég vissi að þeir gætu komið að góðum notum einhverntíman.
Ég sá ekki heldur betur en að allir vildu fá mig til baka á hvuttaspjallið (gerðu þráð um það og skoðunarkönnun) þegar þú bannaðir mig, nema þú, en mig langaði bara ekkert að fara á það aftur. Fyndið hvernig þeim þræði var eytt út undir eins lol!
Fyrirgefðu að ég skuli ekki hafa auglýst hvuttar.net þegar ég var beðin um að koma í útvarpsviðtal, þú varst ekkert smá reið þegar ég sagði að ég væri ekkert skildug til að auglýsa síðuna þína. Þannig byrjaði þetta allt. Öfundsýki bara, því enginn hafði beðið þig um að koma í útvarpsviðtal til að auglýsa þína síðu….freekar glatað. Enda eftir að lesa þræðina eftir þig, hvern myndi langa til að fá þig í viðtal?
Allavega ekki ég miða við geðveikina sem ég hef tekið eftir.
ok, nóg um persónulegan ágreining, langaði bara að svara þessum ásökunum þínum sem þú þurftir endilega að koma með. Þú baðst um þetta!
Sá sem vill ekki skrifa undir þennan lista er annaðhvort hlutlaus eða á móti honum. Ég hef rétt á því að vera hlutlaus!
Sættu þig við það!
p.s. Ég hef ekkert meira að segja, nú mátt þú æsa þig eins og þú vilt en ekki búast við því að fólk trúi orði af því sem þú segir, því margt af því er bara eintómur hugarburður.