Þegar sámur var yngri bjó hann hjá Afa. Eitt skifti kom rukkari til afa og var vitanlega að rukka, (það er það sem rukkarar gera) svo sá Sámur hann og bara tók sér smá tilhlaup og bara stökk á “vesalings” rukkarann.. svo hann lá bara kylliflatur..
engin grimmd hjá honum eða neitt.. bara smá leikur.
Sem betur fer varð rukkarinn ekkert voðalega reiður og gerði ekki mikið í málinu ;) Ekki amalegt að láta um 70kg flikki stökkva á sig..
Svo einu sinni vorum við Mamma með hann á Geirsnefi og hann var eitthvað að skoða hina hundana.. og svo sá hann þarna konu i afskablega fallegum bláum snjógalla…minn tók sér lítið til og bara upp með löppina og lét nokkra dropa vaða bara í konuna!! ég er svo hissa á að konan hafi ekki tekið eftir þessu!
svo sagði einn maður sem var þarna að þessi kona væri lögfræðingur! Við vorum ekki lengi að koma okkur í burtu ;)