Ég ætla aðeins að fá að tjá mig.
1. Ég mundi aldrei brjóta neinar reglur viljandi.
2. Ég vissi ekki af þessarri “fyrstur” reglu fyrr en eftir að ég var settur í bann og fór að grandskoða hvaða fjandans reglu ég braut. Vissi hreinlega ekki hvenær reglan var sett upp en litla letrið í viðvöruninni hefur því miður farið framhjá mér hingað til enda mjög óáberandi.
3. Þetta er í fyrsta skiptið ever sem ég hef skrifað eitthvað svona bull og tilgangurinn var ekki að spamma heldur að gera grín að þeim sem hafa hvað mest verið duglegastir í þessu tilgangslausu rugli (ath. orðið “öööööööhh”).
4. Er ég að spamma daginn inn og út? Er ég síbrjótandi af mér? Hef ég verið bannaður áður? Nei, það held ég ekki!
Af hverju má þá ekki bara gefa mér áminningu í stað þess að setja mig beint í einhvert fáránlegt og tilgangslaust bann sem mér finnst ég á hreinlega ekki skilið?
Sem sagt, ég er hundóánægður með vinnubrögð ykkar.