Konan sem hefur verið gift manninum sínum í 12 ár fór í vinnuna einn daginn og maðurinn hennar var að horfa á sjónvarpið. Svo þegar hún var búin að keyra um 100 metra bilaði bíllinn, þannig að hún gekk til baka og ætlaði að biðja manninn sinn um hjálp við bílinn. Þegar hún kom til baka kom hún að manninum sínum í nærfötunum sínum með meiköpp, og komst að því að hann hefði stundað þetta í hálft ár. Hún sagði honum að hætta þessu eða þá að hún færi frá honum. Eftir að hún sagði þetta hefur maðurinn hennar verið fjarlægur og eitthvað, og konan spyr svo hvað hún eigi að gera. Svarið sem hún fær er bara um það hvernig eigi að gera við bílinn og hvers vegna hann hefði getað bilað….