Hvernig væri bara af að þú sendir inn myndir sem þér finnast fyndnar í staðinn fyrir að eyða tíma þínum í að væla yfir því sem þér finnst ekki fyndið? Það er til fólk sem finnast kattamyndir fyndnar, ergo, þær eru húmor og eiga rétt á sér hérna.
Mér finnst Dead Baby Jokes ekki fyndnir en ég er samt ekki að væla yfir þeim og segja fólki að hætta að senda þá inn. Ég skoða þá enfaldlega ekki.
DBJ var einu sinni að taka yfir áhugamálið. Það er ekki nema svona ár til eitt og hálft ár síðan allt flæddi hérna af DBJ. En það er satt að þeir eru ekki lengur að yfirtaka áhugamálið. Og ég býst við að kattamyndirnar fari sömu leið innan tíðar og önnur “tíska” tekur við.
En allavega, takk fyrir stuðninginn með undirskriftina :-)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..