Þú hlýtur bara að vera að grínast með þetta. Þú hefur engar tölur um að flestir múslimar hati gyðinga. Íslamstrúarmenn eru gríðarstór hópur manna. Jafnvel þó hver einasti maður í helstu átakasvæðum mið austurlanda hefði brennandi hatur á hverjum einasta gyðingi, sem enginn möguleiki er á, þá nægði það enganveginn til að leyfa þér að tala um “flesta” múslima. Það er rétt að átökin milli múslima og gyðinga hófust ekki við stofnun ísraelsríkis, en það er samt nær eingöngu 20.aldar fyrirbæri. Gyðingar hafa lifa í múslimskum löndum öldum saman og er kóraninn að miklu leyti byggður á gyðingdómi. Það var í Evrópu sem að þeir voru drepnir og ofsóttir. Þú talar um að ísraelsríki væri afleiðing gyðingahaturs.
Í fyrsta lagi þá geturðu ekki talað um að stofnun einhvers sé afleiðing einhvers annars; það eru ísraelsmenn sem bera ábyrgð á glæpum ísraelsmanna.
Í öðru lagi þá varð ísraelsríki til þannig að bretar vildu losna við lönd sín fyrir botni miðjarðarhafs en vildu frekar gefa vinum sínum þær en að skila landsvæðinuu aftur til þjóðarinnar sem þar bjó. Einnig vildu þeir þjóna valdhöfum, en gyðingar voru mjög sterkir í bretlandi og bna á þessum tíma sem og reyndar annarssstaðar í evrópu fyrir stríð. Þessvegna var ríkið stofnað.
Í þriðja lagi þá gætirðu hugsanlega kreyst fram þau rök að Ísrael hafi verið stofnað vegna ofsókna á hendur þeirra í stríðinu, þó það sé enganveginn rétt þar sem þeir voru ekkert ofsóttir í þeim löndum sem stofnuðu fokking ríkið. En hvað hefur það að gera með múslima?! Það er margt sem þínir líkir getið klínt á múslima trú til verndar þeira sem raunverulega bera sökina, en hvernig í veröldinni ætlarðu að klóra þig fram úr þessu?
Það stendur líka í biblíunni að þegar konu er nauðgað sé hún þvinguð til þess að giftast nauðgara sínum. Þegar tveir menn sofa saman séu þeir réttdræpir. Við búum í kristnu samfélagi, myndirðu segja að þetta séu eðlileg viðhorf í meðal okkar? Eða erum við bara betra fólk en múslimar? Það sem ég er í örvæntingu minni að reyna að upplýsa þig um er að þín ímynd af múslimstrú hefur ekkert að gera með það hvernig hinn almenni múslimi hugsar. Lang stærstur hluti múslima er ekki herskár. Stærstur hluti þeirra sem er herskár er það til að berjast fyrir réttindum fólks síns og gegn kúgunaröflum heimsins. Örsmár hluti íslamstrúarmanna er bæði trúarofstækismenn og fullir af hatri. Það hlutfall er alveg jafn hátt og öfgahópar í vestrænum samfélögum; ofsatrúarhópar, anarkistar, rasistahópar o.s.fr. Það eru bara hinir sem fá ranga umfjöllun í fjölmiðlum svo gæjar eins og þú haldi að þeir séu verri en annað fólk og styðjir frekar imperíalista á borð við bandaríkjastjórn og handbendi hennar, íslraelsmenn.
Þú segir að múrinn hafi verið byggður vegna árása palestínumanna. Í fyrsta lagi þá er drápshlutfallið 10 á móti einum, þ.e 10 palestínumenn á móti einum ísraela sem er drepinn á þessu svæði. Í öðru lagi þá stækkuðu þeir landið eftir að egyptar réðust á þá, kúgun saklausra palestínumanna er enganvegin réttlætanleg með því. Í þriðja lagi; hversvegna, minn kæri Akureyringur, ætli þeir hafi ráðist á þetta ríki? Hugsanlega vegna þess að þeir komu þangað með vopnuðu ofbeldi og bókstaflega hertóku svæðið sem palestínumenn bjuggu á? Reyndu að segja mér að þú myndir ekki gera slíkt hið sama.
Ég vona að þetta hafi verið nógu vel uppsett fyrir þig og óska þess að þú takir því alvarlega sem ég hef að segja. Það er ekkert rými fyrir hálfsannleika og innantómar ásakanir í umræðu sem þessari.