Það var fyrir nokkru að ég og nokkrir vinir vorum að leika við hund eins okkar, þetta var svona risastór Doberman hundur, og við vorum bara að kasta bolta á milli og láta hann hlaupa eftir honum og e-ð, og þá í einu kastinu missir einn (man ekki hver það var) jafnvægið og kastið misheppnast. Atburðarásin var einhvern veginn svona:
Ég hleyp eftir boltanum sem liggur á jörðinni
Hundurinn kom hlaupandi á fleygiferð frá vinstri hönd
Hundurinn rammar höfðinu í hnéð á mér sem lætur mig snúast í 270° sideflip og lendi einhvern veginn (er ekki alveg viss hvernig) og ég gat ekki gengið í beina línu í svolítinn tíma á eftir.

Stuttu seinna var annar vinur minn að hlaupa undan sama hundi, þegar hann bítur hann í aðra rasskinnina, þetta var eins og klippt út úr teiknimynd. Við vorum allir að deyja úr hlátri (nema sá sem var bitinn)