HVER ER ÉG?

Ég er um það bil 20 cm langur. Virkni minni er notið af fólki beggja kynja. Venjulega má finna mig lausan á mínum vanalega geymslustað. Ég er ávallt tilbúinn í tafarlaust útkall. Ég er ílangur, skreyttur með þyrpingu hára á öðrum endanum. Við notkun er mér ýtt fram og til baka inn í heitt, rakt gat, stundum hægt og stundum hratt, oft í röð. Þessu fylgir taktföst líkamshreyfing notandans. Ef hlustað er vel má heyra taktfast hljóðið sem þessu fylgir. Þegar ég er togaður út, skil ég iðulega eftir, þykkan, hvítan, slímugan vökva. Eftir notkun er ég hreinsaður og get þá snúið í hvíldarstöðu mína, ávallt tilbúinn í næsta útkall. Ég vonast eftir því að vera notaður um tvisvar til þrisvar á dag en því miður gengur það sjaldnast eftir. Og þá máttu giska, hver er ég?

Og svarið er: Ég er…
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-TANNBURSTINN ÞINN!!!