Jæja … ég er búinn að vera að vinna núna á sama stað í 7 mánuði og er búin að vera að vinna með yfirmanninum mínum í 3 mánuði
ok málið er það að ég er ekki alveg heilbrigður þegar ég vakna ….
allavegana ég var að vinna á mánudaginn og er að vinna 13 tíma vakt og ég á að mæta klukkan 11 daginn eftir
ég fer síðan eithvað að grúska um nóttina … man ekki hvað og fer að sofa um 4 leitið ….
klukkan hálf 12 þá hringir yfirmaðurinn í mig
ég “hvað”
boss “vó … bary white sjálfur”
ég “hvað meinarðu”
boss “þú hljómar eins og barry white”
ég “hvað er klukkan”
boss “þú ert hálftíma of seinn”
ég “ég er að koma”
og ég náttúrulega bölva sjálfum mér eins og alla morgna fyrir það að hafa misst bílprófið og rölti niðrí vinnu
jæja eftir að hafa verið að vinna í svona 2 tíma þá fatta ég það að ég er kominn í minn víðfræga morgunbóner … ég tilkinni yfirmanninum mínum það að ég sé að vakna og segi honum hvers vegna ég haldi því framm og hann hlær eins og rotta
jæja svona 2 tímum seinna þá fatta ég það að ég er ekki í naríum … ég hafði einfaldlega vaknað og farið í buxur án þess að hugsa útí undirföt og ég bara flott og pæli ekki í því meira
nema það að vinur minn er komin með þann skemtilega húmor að gyrða niðrum mann á verstu mómentum og gerir það einmitt á því mómenti þar sem ég er að afgreiða kúnna og já … u know the rest