Það var nú eitt sinn að tveir ungir menn í MR voru að fagna því að þeir höfðu náð prófunum. Eitthvað höfðu þeir verið að drekka mikið þar sem þeir misstu sjónar af hvorum öðrum. Þar sem þeir voru að leita að hvorum öðrum þá rambaði annar þeirra inn á bænasamkomu, settist þar niður á bekk og sofnaði.
Hann vaknaði svo stuttu síðar við það að presturinn klappaði á öxlina á honum og spurði :
''Hefur þú fundið Jesú?''
Þá svaraði sá drukkni :
“Nú? Er hann nú týndur líka???”
Haha, þetta gerðist í alvörunni líka =)