ég er með tvær reynslu sögur og þær eru hvorugar mínar en þær eru rosa fyndnar :)

sko vinur minn á pabba og pabbi hans átti/á vin. þegar þessi vinur var 17 ára þá var hann að vinna einhverstaðar í fiski eða eitthvað [man ekki] og það var gamall húsvörður sem var ógeðslega leiðinlegur og var alltaf að setja útá hvað hann var að gera. svo einn daginn ákvað hann að hrekkja gamla kallin einu sinni. þegar allir voru farnir úr vinnunni og gamli kallin var að þrífa þá fór strákurinn inná klósett og bræddi súkkulaði á setuna. svo þegar hann var að labba út þá gargaði gamli kallin á hann. hann labbaði rólegur til hans. gamli kallin leit á hann og sagði 'varst þú að þessu!?' 'nei' sagði strákurinn. 'jú víst ég var nýbúin að þrífa þetta klósett og svo var þetta allt í einu komið rétt eftir að þú varst búin á klósettinu' ‘já en bíddu aðeins’ sagði strákurinn og setti puttan í kúkinn (súkkulaðið) og sleikti. ‘þetta er ekki minn kúkur’

gamli kallinn setti upp þennan líka heiftarlega svip :D
—————————————

frændi minn heitir Einar. hann á eldri systur sem er sirka 1-2 árum eldri en hann. þegar hann var lítill 4-5 ára þá var gamlárs kvöld og það var verið að skjóta upp rakettum. þá segir systir hans við pabba þeirra 'pabbi, pabbi má ég skjóta upp einari?' þá vældi Einar ‘neeeeeeeeeeiiiiii’ :(

Takk fyrir mig :þ
VikingMan
So does your face!