Í byrjun þessa árs, var ég að vinna hjá pabba mínum, rafvirkjun, uppi á olís og ég var niðri í einhverjum kjallara og var að labba undir einhver rör og ég labbaði á hendina á mér, hvernig sem það er nú hægt!!!

Maggi bekkjarbróðir minn, var að stríða stelpunum með því að kippa stólnum undan þeim, hann gerði það við 1 stelpu og hún datt á rassinn, og svo reyndi hann þetta aftur en hún var þá alltaf tilbúin að standa upp, svo kom Arnar, sem er vinur minn og ætlaði að kippa stólnum undan henni, en hún stóð upp og hann flaug á gólfið, því hann var að búast við það það væri erftitt að kippa í stólinn, haha það var ógeðslega fyndið, við bókstaflega öskruðum úr hlátri, haha.