Einu sinni var Siggi úti að labba og þá sá hann Jónu vinkonu sína. Jóna kom til hans og sagði við hann:
- Komdu heim til mín. Ég ætla að sýna þér dálítið.
Siggi hugsaði: ,,Yes, yes, yes''.
Þau flýttu sér heim til hennar og þegar þangað var komið, þá flýttu þau sér inn í herbergið hennar og Jóna læsti hurðinni vandlega.
Siggi hugsaði alltaf : ,,Yes, yes, yes''.
Jóna sagði:
-Siggi…
Siggi svaraði:
-JÁ!
-Siggi…
Siggi varð orðinn mjög spenntur og æpti:
-JÁ, JÁ, JÁ, YES, YES, YES!!!
Jónu var skemmt og hún stundi upp með sigurhrósi:
-Siggi! ÉG STAL TYGGJÓI Í BÓNUS!!!!!!!!