Hún Stína litla…
… er svo grönn að í hvert skipti sem hún fer niður að Tjörn kasta endurnar brauði í hana.
——————————————–
Gömul kona sat í strætónum á leið sinni til dýrakirkjugarðsins. Í fanginu var hún með kassa en í honum var líkið af kettinum hennar. Hún hvíslar að bílstjóranum: “I have a dead pussy.”
Hann svarar: “Sit with my wife. You two have a lot in common.”
————
Karlkyns vistmaður ákvað að gera svolítinn usla í samkvæmislífinu á Grund og auglýsti kynlífsþjónustu á hurðinni hjá sér gegn greiðslu.
Ekki leið á löngu þar til gömul vistkona bankaði hjá karli og spurði um þjónustuna.
Hann sagði henni að einn á gólfinu kostaði 500 kall, einn á borðinu 1000 kall en 4000 kall ef farið væri í rúmið. Hún fór í veskið og snaraði fram 4000 kalli.
“Jæja, svo þú ætlar að fá einn í rúminu” sagði sá gamli.
“Nei, nei” sagði kella, “ég ætla að fá það 8 sinnum á gólfinu”
————————————————
Guðrún fór einn daginn til prestsins í kirkjunni sinni. “Séra,” sagði hún, “ég á við svolítið vandamál að stríða, eiginmaðurinn minn steinsofnar alltaf í messunum þínum. Það er orðið ansi vandræðalegt. Hvað get ég eiginlega gert?”
“Ég er með hugmynd,” segir presturinn. “Taktu þessa saumnál með þér næst og þegar ég tek eftir því að hann sé að sofna, þá gef ég þér merki með því að kinka kolli og þú stingur hann í lærið með nálinni”
Næsta sunnudag í kirkjunni tók presturinn eftir því þegar Einar, maður Guðrúnar var að sofna og ákvað að setja plan sitt í gang.
“Og hver var það sem fórnaði sér fyrir syndir ykkar” sagði presturinn, kinkandi kolli til Guðrúnar.
“Jesús Kristur!”, öskrar Einar þegar Guðrún stingur hann í lærið.
“Mikið rétt hjá þér, Einar” segir presturinn brosandi.
Presturinn tekur svo eftir því þegar Einar er að dotta aftur.
“Hver hefur gefið ykkur frjálsan vilja og mun gefa ykkur eilíft líf?” spyr hann söfnuðinn um leið og hann gefur Guðrúnu merki.
“Guð, minn góður!” öskrar Einar þegar hann fær nálina í lærið.
“Rétta hjá þér á ný, Einar” segir presturinn skælbrosandi.
Presturinn heldur áfram að predika en tekur ekki eftir því þegar Einar sofnar á ný. Presturinn gleymir sér í ræðunni og þegar hann leggur áherslu á setningarnar sínar kinkar hann óvart kolli.
“Og hvað sagði Eva við Adam eftir að hafa fætt honum 99´unda son hans?” spyr presturinn söfnuðinn hátt og snjallt.
Nálin stingst í lærið á Einari sem öskrar “EF ÞÚ STINGUR ÞESSUM HELVÍTANS HLUT Í MIG EINU SINNI ENN, ÞÁ BRÝT ÉG HANN Í SUNDUR OG TREÐ HONUM UPPÍ RASSGATIÐ Á ÞÉR”
“Amen,” svarar söfnuðurinn.
HU!!