Varúð: Ofsatrúarmenn og menn/konur sem eru viðkvæmir fyrir yfirnáttúrulegum öflum hættið að lesa hérna

Þegar það var verið að krossfesta Jesús stóð Pétur álengdar frá krossinum og fylgdist með. Alllt í einu sagði Jesús “Pétur, koddu snöggt”
Pétur sem átti í erfiðleikum með að komast að Jesús vegna varða allt í kringum hann tjáði Jesús að hann kæmist ekki lengra.
“Pétur, koddu snöggt” Hélt Jesús áfram.
Pétur hljóp að vörðunum og freistaðist að komast framhjá þeim en mistókst herfilega með þeim afleiðingum að hann missti eina hönd. Áfram hélt Jesús að kalla á hann svo að hann reyndi aftur og missti hina hendina. Enþá hélt Jesús að kalla.
“Ég er að koma meistari” Öskraði Pétur og gerði allsherjarhlaup á verðina, náði loks að komast í gegnum þvöguna með aðeins einn fót. Hann hneig niður við hlið krossins og rétt náði að segja
“Hvað meistari?”
“Pétur” Sagði Jesús glaðlega “Þú trúir þessu aldrei, ég sé húsið þitt héðan”