Sjúklingurinn:Þarf sex lækna og þrjár hjúkrunarkonur til að
taka þennan gallstein úr mér?
Læknirinn:Já ég er hræddur um það.
Sjúklingurinn:Segðu mér, hvað er þessi gallsteinn þungur?

—-

Á Grænlandi þurfa ungir menn að sanna karlmennsku sína þegar þeir eru 18 ára. Þeir þurfa að gera þrennt, fyrst þurfa þeir að drekka heila fötu af brennivíni og síðan þurfa þeir að drepa ísbjörn og svo að lokum þurfa þeir að ríða ljótustu konunni í þorpinu. Einn guttinn hleypur að fötunni skellir henni í sig og hleypur svo út á ísinn. Hann kemur ekki heim fyrr en næsta dag allur tættur og blóðugur og eldrauður í framan og öskrar yfir þorpið…..
….HVAR ER KELLINGIN SEM ÉG Á AÐ DREPA.

—-

Kona nokkur fer til lýtalæknis og biður um brjóstastækkun.
Lýtalæknirinn segir, “Þú ert ábyggilega með stærð 38-D. Af hverju viltu fá stærri?”
Og hún svarar, “Það er nú eiginlega ekki ég, en maðurinn minn er rosalega hrifinn af stórum brjóstum. Hann er búinn að vera að nuða í mér svo ég ákvað að kíkja á það.”
“Heyrðu, brjóstin á þér eru fín,” segir læknirinn, “og samviska mín bannar mér að fara að breyta því eitthvað. En ef endilega vilt, þá get ég mælt með aðferð til að stækka þau án aðgerðar. Á hverjum morgni, þá skaltu taka dálítinn slatta af klósettpappír og nudda honum á milli brjóstanna á þér nokkrum sinnum.”
“Stækka þau við þetta?” spyr konan.
“Auðvitað, sjáðu bara hvað það hefur gert við rassinn á þér!”