Laust eftir jólin stóð mamma í eldhúsinu og hlustaði á son sinn leika
sér frammi í stofu af rafmagnslesinni sem hann fékk í jólagjöf. Þegar
lestin nam staðar gall við í syninum: ,,Þið hálfvitarnir sem viljið
fara út hér, drullið ykkur út strax því þetta er síðasta stopp! Og þið
þarna hálvitar sem eruð að koma um borð, drullið ykkur inn því við
erum að fara af stað“.
Mamman varð alveg æf og öskraði á drenginn: ,,Svona orðbragð er ekki liðið hér drengur minn! Nú verð þú inn í herbergi og verður þar í 2
tíma. Eftir það máttu leika þér að lestinni, en þá verðuru líka að tala fallega.”Tveim tímum seinna kemur drengurinn fram og byrjaði að leika sér að lestinni.
Mamman hlustaði innan úr eldhúsinu. Þegar lestin nam staðar sagði sonurinn: ,,Allir farþegar sem fara hér út eru vinsamlega beðnir um að taka allan farangur með sér. Við vonum að ferðin hafi verið ánæguleg og
þökkum ykkur fyrir að ferðast með okkur. Vonandi sjáumst við aftur.“
Og hann hélt áfram: ,,Við biðjumfarþega sem eru að koma um borð að setja allan farangur undir sætin fyrir framan sig. Munið að reykingar eru ekki leyfðar um borð í lestinni. Við vonum að þið njótið ferðarinnar með okkur í dag.”
Bros færðist yfir mömmuna, En drengurinn bætir við; ,, Þeir farþegar
sem vilja gera athugasemd við þessa TVEGGJA KLUKKUTÍMA töf, eru
vinsamlegast beðnir um að tala við tæfuna frammi í eldhúsi."