vertu leiðineg/ur við systkinin…!

leiðinlegt systkini ?

Systkini eru alltaf pirrandi…Vertu pirrandi á móti!

Alltaf þegar systkini þitt er í tölvunni skaltu sparka í stólinn hjá því*

Endurtaktu allt það sem systkini þitt segir*

Alltaf þegar þú getur skaltu kyssa og faðma systkini þitt*

Raulaðu alltaf sömu laglínuna úr einhverju lagi sem systkini þitt þolir ekki*

Vertu alltaf að garga ,,padda, padda!” ef systkini þínu er illa við pöddur*

Vertu alltaf að taka dótið sem systkini þitt er með*

Alltaf þegar systkini þitt er með vini sína í heimsókn, vertu þá hangandi yfir þeim að spyrja einhverra hallærislegra spurninga. Ef þér er hent út geturðu haldið áfram í gegnum hurðina*

Ef systkini þitt er að lesa eitthvað skemmtilegt skaltu verða að pota í það sem systkini þitt er að lesa og fikta eitthvað í systkininu*

Alltaf þegar systkini þitt er með vini skaltu koma með þessar smábarnamyndir sem fullorðna fólkið elskar að taka af þeim, sérstaklega berum!*

Alltaf þegar þú ert með einhvern vökva skaltu hella smá á systkinið og segja ,,oops! Þetta var óvart!”*