Einu sinni var strákur sem hljóp sífellt kringum blokkina sína.

Lögregluþjónn sem horfði á hann stóðst ekki mátið og spurði stráksa hvað hann væri að gera.

“Jú, sjáðu til”, sagði stráksi. “Ég er fluttur að heiman, en mamma hefur bannað mér að fara yfir götuna.”