Það voru tveir menn í vinnu hjá manni sem var skógarhöggsmaður, og hétu þeir Viður og Vindur.
Einn daginn ákvað Viður að hrekkja starfsfélaga sinn Vind, og batt hann upp við tré. Skógarhöggsmaðurinn varð svo reiður að hann rak Við og leysti Vind.