Ég vil bara geta þess að Jay Leno er á Skjá 1 og geta allir náð honum, enda er Skjár 1 ekki áskriftarstöð. David Letterman er á Sýn, en maður þarf að vera áskrifandi til þess að sjá hann.

Jay Leno er með brandara sem að ná til allra, hann gerir mjög sjaldan grín að sjálfum sér og fjallar aðallega um fræga fólkið.

David Letterman hefur mjög frjálsar hendur í þættinum sínum, er “hæfilega” beittur og er alveg sama þótt að hann þurfi að hætta í miðjum dagskrárlið.

Þessir tveir aðilar eru mjög ólíkir, og þess vegna erfitt að skera úr um hvor er fyndnari. Reyndar er Jay Leno vinsælli og fleiri hugarar geta horft á hann en David Letterman, svo að það er ekkert skrítið þó að hann fá fleiri atkvæði.<br><br>Royal Fool
“You've been Fooled”