(\_/)
Einn fínn
Einu sinni voru Hafnfirðingur, Reykvíkingur og Akureyringur á eyðieyju. Þeir fundu svo lampa með töfraanda sem veitti hverjum þeirra eina ósk. Reykvíkingurinn óskaði sér að hann væri kominn heim í faðm fjölskyldunnar og *púff* hann var horfinn. Síðan óskaði Akureyringurinn sér að það kæmi skip sem sigldi með hann heim og *púff* það kom skip sem sigldi með hann heim til sín. Síðan var komið að Hafnfirðingnum en hann var orðinn svo einmanna að hann óskaði að hinir tveir væru komnir aftur.