Bréf frá Hr. Tippi.
Ég, herra Tippi, fer hér með fram á kauphækkun með meðfylgjandi
rökstuðningi:
Starf mitt felst í miklu líkamlegu erfiði. Ég vinn oft á miklu dýpi.
Ég tek áhættuna af því að reka hausinn inn fyrst í öllum verkum sem
ég geng í. Ég fæ ekki frí um helgar eða á hátíðisdögum. Ég vinn við
rakamettaðar aðstæður. Ég fæ ekki borgað fyrir yfirvinnu. Ég vinn á
dimmum vinnustað með lélega loftræstingu. Ég vinn við mjög hátt
hitastig. Það kemur fyrir að ég er krafinn um að vinna í bakgarðinum
sem mér finnst ekki þrifalegasti staður í heimi. Ég er iðulega
krafinn um vinnuframlag þótt allir sjái að ég er verulega slappur.
Mér er skipað að fara ítrekaðar ferðir inn á þennan dimma og raka
vinnustað þótt allir viti að það endar alltaf með því að ég kasta
upp. Starf mitt gerir mig berskjaldaðan gagnvart hættulegum
sjúkdómum.
Virðingarfyllst: Hr. Tippi
SVAR FRÁ STJÓRN:
Kæri Hr. Tippi. Eftir að hafa metið beiðni þína og farið yfir þau
rök sem þú leggur fram hefur stjórnin ákveðið að hafna beiðni þinni
af eftirtöldum ástæðum:
>
Þú vinnur aldrei í 8 tíma samfellt. Þú fellur iðulega út af og
sofnar í vinnunni, jafnvel eftir mjög stuttar vinnulotur. Þú hlýðir
ekki alltaf skipunum stjórnandans. Þú heldur þig ekki alltaf á þínum
vinnustað og það hefur oft sést til þín við að heimsækja aðra
vinnustaði. Þú tekur aldrei frumkvæðið, það þarf iðulega að troða
þér inn á vinnustaðinn til að þú farir að vinna. Það hefur oftar en
ekki komið fyrir að þú átt í erfiðleikum með að komast í gang í
vinnunni, og þarft þá á fullmikilli handleiðslu að halda. Þú roðnar
alltaf þegar þú ert beðinn að vinna. Þú hefur jafnvel mætt til vinnu
með ostaslettur á hálskraganum. Þú skilur frekar subbulega við
vinnustaðinn þegar þinni vakt lýkur. Þú ferð ekki alltaf eftir
öryggisreglum eins og t.d. þeim að vera í réttum hlífðarfatnaði við
vinnu. Það vita það allir að þú munt láta af störfum löngu áður en
þú verður 65 ára. Þú getur ekki unnið tvöfaldar vaktir. Þú átt það
til að yfirgefa vinnustaðinn áður en þú hefur lokið því verkefni sem
fyrir þig var lagt. Og eins og allt þetta sé ekki nóg, þá er því við
að bæta að þú hefur þráfaldlega sést á sífelldu rápi inn og út af
vinnustaðnum, berandi tvo mjög grunsamlega poka.
Virðingarfyllst: Stjórnin
