Síðasta vetur, þegar hráslagalegt hafði verið um hríð, ákváðu hjón ein að flýja vetur konung í viku og pöntuðu sér ferð suður í höf. Þannig atvikaðist að konan þurfti að fljúga degi síðar en ætlað var en eiginmaðurinn flaug á undan..
Þegar kallinn er kominn á hótelið rífur hann upp ferðatölvuna og
skrifar strax bréf til konu sinnar. Ekki vildi betur til en svo að hann misritaði einn staf í adressunni og lenti bréfið hjá ekkju einni sem nýbúinn var að jarðsetja sinn heittelskaða. Ekkjan sem rétt var búin að jafna sig eftir athöfnina, var í þann mund að líta eftir samúðarkveðjum þegar bréfið barst……
Þegar sonur ekkjunnar kom heim lá hún í yfirliði fyrir framan tölvuna og þetta stóð ritað á skjáinn:
Til: Konu minnar sem eftir var
Frá: Manninum þínum sem fór á undan
Efni: Er kominn á áfangastað
Elskan,
Er kominn heill á húfi. Er búinn að kynna mér allar aðstæður og gera allt klárt fyrir komu þína á morgun. Óska þér góðrar ferðar og bíð þín með óþreyju.
Ástarkveðjur,
Þinn eiginmaður.
P.S. Fjandi heitt hérna niður frá