Einusinni voru þrjár kókflöskur úti að labba. Þær þurftu að fara yfir brú. Fyrst fór minnsta flaskan yfir. Alltíeinu hoppar stór upptakari upp á brúna.
Upptakari: Múhaha, ég er stóri ljóti upptakarinn og nú ætla ég að taka þig upp!!
Minnsta flaskan: Nei, ekki taka mig upp! Bráðum kemur miðjuflaskan og það er miklu meira kók í henni heldur en mér!
Upptakarinn leyfir litlu flöskunni þá að fara yfir og svo kemur miðjuflaskan.
U:Múhaha, ég er stóri ljóti upptakarinn og nú ætla ég að taka þig upp!
Miðlaska: Nei ekki taka mig upp. Bráðum kemur stóra flaskan og það er helmingi meira kók í henni heldur en mér.
Upptakarunn leyfir þá miðflöskunni að fara yfir og svo kemur stóra flaskan, sem er sterkust, enda 2L.
U: Múhaha, ég er stóri ljóti upptakarinn og nú ætla ég að taka þig upp!
S: Hah, reyndu það bara. Ég er með skrúfuðum tappa!