Ungur maður sem réð sig sem leiðbeinanda í gagnfræðaskóla var
orðinn ansi þreyttur á nemendum sínum eftir fyrstu vikuna.
Í einum tímanum, þegar honum þótti börnin sína takmarkaða færni,
sagði hann: „Mig langar að biðja alla þá sem eru heimskir að
standa upp.“ Enginn stóð upp og eftir mínútu þögn sagði
leiðbeinandinn: „Hvað er að ske, eruð þið öll vitringar?” Þá stóð
einn ungur piltur upp og kennarinn spurði: „Svo þú telur þig
heimskan?“ Drengurinn svaraði: „Nei, ég bara vorkenndi þér að
standa þarna einn.”
Hææ..
This is me!!