Konur geta bara ekki þagað
Þessi er dagsönn: Lögregluþjónnn stöðvaði mann á fallegum brúnum Mersedes Benz á Vesturlandsvegi hér í Mosfellsbæ og auk ökumanns sem er virðulegur eldri maður var konan hans í bílnum. Lögreglumaðurinn: “Þú ókst að minnsta kosti á 120 km hraða og veist væntanlega að leyfilegur hámarkshraði er aðeins 90 km á klst.” Maðurinn: “Nei þetta er ekki rétt hjá þér, ég var á tæplega 100.” Konan: “Láttu ekki svona elskan mín, þú varst á 140, ég sá það.” Lögreglumaðurinn: “Ég þarf einnig að setja á sektarmiðann að annað bremsuljósið er brotið.” Maðurinn: “Brotið bremusljós? Ég vissi það bara ekki!” Konan: “Æ, elskan mín, þú veist að það er búið að vera brotið í nokkrar vikur.” Lögreglumaðurinn: “Ég þarf einnig að setja á sektarmiðann að þú hafir ekki verið með öryggisbelti.” Maðurinn: “Heyrðu, láttu nú ekki svona ég losaði mig úr beltinu þegar þú stoppaðir mig.” Konan: “Elsku kallinn minn, ekki segja svona, þú notar aldrei öryggisbeltið.” Maðurinn er nú greinilega orðinn eitthvað pirraður yfir konunni, hann snýr sér að henni og öskrar á hana: “Reyndu nú að þegja einu sinni!” Lögreglumanninum var farinn að finnst þetta nokkuð skemmtilegt svo hann snéri sér að konunni og spurði hana: “Frú, talar maðurinn þinn alltaf svona við þig?” Konan: “Nei, bara þegar hann er fullur.”