Presturinn og gamla konan
Sóknarpresturinn var að heimsækja eitt sóknarbarnið, háaldraða konu. Hann tekur eftir skál fullri af girnilegum hnetum á stofuborðinu. ,,Mætti ég fá mér nokkrar?'spyr hann. ,,Gjörðu svo vel' svarar gamla konan. Eftir klukkustundarspjall stendur presturinn loks upp til að fara. Hann tekur þá eftir því að hann hefur klárað allar hneturnar úr skálinni! ,,Ég bið þig forláts á að hafa klárað allar hneturnar úr skálinni, ég ætlaði bara að taka nokkrar, ,,segir presturinn hálfvandræðalegur. ,,Æ það er allt í lagi' svarar gamla konan. ,,það eina sem ég get gert eftir að ég missti allar tennurnar er að sjúgja súkkulaðið utan af þeim.'