Í þessu lífi er ég maður. Í næsta lífi vil ég verða skógarbjörn.


Ef þú ert björn færðu að leggjast í dvala


Þú gerir ekkert annað en að sofa í sex mánuði


Ég gæti lifað með því


Áður en þú leggst í dvala áttu að troða þig út af mat þangað til þú stendur á gati. Ég gæti líka lifað með því


Ef þú ert kvenkynsbjörn þá fæðirðu ungana þína (sem eru á stærð við hnetur) á meðan þú sefur og þegar þú vaknar ertu komin með stálpuð sjálfbjarga bangsakrútt Ég gæti sko alveg lifað með því


Ef þú ert bjarnarmamma þá vita allir að þér er alvara


Þú abbast upp á þá sem abbast upp á ungana þína


Og ef ungarnir þínir eru eitthvað óþægir, þá abbastu upp á þá líka Ég gæti lifað með þessu

Ef þú ert björn þá BÝST maki þinn við því að þú vaknir urrandi og hann REIKNAR MEÐ því að þú sért loðin á leggjunum og með hátt hlutfall
líkamsfitu.

Jebb, ég ætla að verða skógarbjörn