Ef vinnudagurinn hefur verið hræðilegur prófaðu þá þetta:
Farðu í apótek á leiðinni heim og kauptu Johnson & Johnson hitamæli,
enga aðra tegund.
Þegar þú ert komin/n heim lokaðu þá að þér, dragðu gluggatjöldin fyrir og taktu símann úr sambandi. Farðu í mjög þægileg föt, t.d. íþróttagalla, og leggstu upp í rúmið þitt.
Opnaðu pakkann og settu mælinn varlega á náttborðið.
Taktu bæklinginn sem fylgir og lestu hann.
Þú munt sjá að neðst stendur með litlum stöfum : Allir endaþarmsmælar frá Johnson & Johnson fyrirtækinu eru persónulega prófaðir.
Lokaðu nú augunum og segðu upphátt : “Ég gleðst af öllu hjarta yfir því að ég vinn ekki á prófanadeildinni hjá Johnson & Johnson fyrirtækinu.”
Endurtaktu þetta fjórum sinnum. Hafðu það svo gott og mundu að það er alltaf einhver sem er í verra starfi en þú.
Erum við ekki í góðri vinnu!
Þú ert ekki orðin drukkin ef þú getur legið á gólfinu án þess að halda þér í ;)