Hérna er allt safnið mitt af þessum ódauðlegu fíla- og atómbröndurum. Ekki mikið en samt nóg til að gefa vel af sér í réttum fíling.
Hvað sagði Tarsan þegar hann sá fílana koma labbandi yfir hæðina?
Svar: Þarna koma fílarnir labbandi yfir hæðina :)
Hvað sagði Tarsan þegar hann sá fílana með sólgleraugun koma labbandi yfir hæðina?
Svar: Ekkert, hann þekkti þá ekki :)
Afhverju naglalakka fílar alltaf tærnar á sér rauðar?
Svar: Til að geta falið sig í Kirsuberjarunnum :)
Hefuru einhvern tímann séð fíl í kirsuberjarunna? Þarna sérðu, það virkar :)
Hvernig veistu að það hefur verið fíll í ísskápnum þínum?
Svar: Það eru fótspor í smjörinu :)
Hvernig veistu að það er fíll heima hjá þér þegar þú kemur heim?
Svar: Hjólabrettið hans er fyrir utan :)
Hvernig kemuru fíl fyrir í ísskáp í 3 handtökum
Svar: 1 opnar ísskápinn, 2 setur fílinn inn og 3 lokar ísskápnum :)
Hvernig kemuru gíraffa fyrir í ísskáp í 4 handtökum
Svar: 1 opnar ísskápinn, 2 tekur fílinn út, 3 setur gíraffan inn og 4 lokar ísskápnum :)
Hvernig kemuru 6 fílum fyrir í Lödu?
Svar: 2 frammí, 3 afturí og einum í hanskahólfinu :)
Atóm Brandarar:
Einu sinni fóru 3 fílar í fallhlífarstökk, fyrsti stökk út og fékk þessa flottu bláu fallhlíf. Sá næsti stökk út og fékk þessa flottu rauðu fallhlíf. Sá þriðji stökk síðan út og ekkert gerist þegar hann tosar í bandið og heldur ekki fyrir varahlífina. þEgar hann fer svo fram hjá hinum fílunum þá segir hann: Þetta er allt í lagi, ég er með tópas í vasanum
Hvort er lengra til Hólmavíkur?
Svar: Hvorki né
Hvort er lengra til Ólafsfjarðar?
Krókódíll á hjóli :)
Vona að þið skemmtið ykkur jafn mikið yfir þessum og ég hef gert í gegnum tíðina en ég minni á að maður þarf að vera í rétta skapinu til að hlæja að þeim