“Drottinn minn, það er smá vandamál!”
“Hvað er að Eva mín?”
“Drottinn minn, ég veit að þú skapaðir mig og hefur
útvegað mér þennan fallega garð og öll þessi yndislegu dýr, og þennan frábærlega fyndna snák, en ég er bara ekki hamingjusöm”.
“Af hverju ertu ekki hamingjusöm Eva?”
“Drottinn minn, ég er einmana. Og ég er orðin hundleið á eplum”.
“Jæja, Eva mín, fyrst svo er þá er ég með lausn á málinu. Ég skal
búa til mann handa þér.”
“Hvað er ”mann“ Drottinn minn?”
“Það er ”maður“ Eva mín. Hann verður gölluð lífvera,
með marga slæma eiginleika. Hann mun ljúga, svindla, hann verður
hégómlegur, og mun á allan hátt verða þér til vandræða.
En…. hann verður stærri, fljótari og sterkari en þú
og honum mun þykja gaman að veiða og drepa fyrir þig.
Hann mun líta mjög kjánalega út þegar hann er æstur,
en fyrst þú ert að kvarta, þá mun ég skapa hann þannig að h
ann muni fullnægja …tja…. já…
þínum líkamlegu þörfum. Hann verður húmorslaus og mun
elska að taka þátt í barnalegum hlutum eins og að slást og sparka bolta til og frá.
Hann verður ekki mjög greindur svo hann mun þurfa
leiðsögn þína til að hugsa skýrt.”
“Hljómar vel” sagði Eva og lyfti annarri augabrúninni háðslega.
“Hverju þarf ég svo að fórna?”
“Tja, já, jæja, þú getur fengið hann með einu skilyrði”.
“Og hvaða skilyrði er það Drottinn?”
"Eins og ég sagði, hann verður stoltur, hrokafullur og sjálfsánægður….
Svo þú verður að leyfa honum að halda að ég hafi skapað hann fyrst….
Þetta verður leyndarmálið okkar…bara tveggja kvenna
á milli!
G