Nokkrir góðir vírusar !!
ROSS PEROT VÍRUS
Ræsir hvert einasta forrit í tölvunni þinni rétt áður en slökknar á öllu helvítis draslinu.
OLIVER NORTH VÍRUS
Veldur því að prentarinn þinn breytist í pappírstætara
ALÞINGISVÍRUSINN
Keyrir öll forrit á harða diskinum samtímis en gerir notandanum ekki kleift að gera nokkurn skapaðan hlut.
GEORG BUSH VÍRUSINN
Byrjar á að skrifa stórum stöfum á skjáinn: lesið skilboðin mín…., engin ný skjöl! Í beinu framhaldi fyllir hann harðadiskinn af nýjum skjölum og kennir Alþingisvírusinum um allt saman.
ALÞINGISVÍRUS 2
Tölvan frýs, skjárinn skiptist í tvo hluta og á báðum hlutum birtast skilaboð þar sem hinum hlutanum er kennt um vandamálið.
HEILBRIÐGISKERFISVÍRUSINN
Tekur allan daginn að skoða tölvuna þína, finnur ekkert athugavert en sendir stjórnvöldum reikning upp á 450 þúsund krónur.
Kv. Daywalke