Nemandi úr Samvinnuskólanum á Bifröst sótti um vinnu sem afgreiðslumaður
í Kaupfélagi úti á landi.
Þetta var svona alvöru kaupfélag þar sem hægt var að fá allt milli
himins og jarðar. Kaupfélagsstjóranum leist vel á manninn þótt hann
væri ungur og óreyndur og ákvað að taka hann til reynslu. Hann sagði
manninum að mæta morguninn eftir og síðan myndi hann koma um kvöldið og
athuga hvernig hefði gengið.
Þegar kaupfélagsstjórinn kom í búðina kvöldið eftir spurði hann unga
manninn hvað hafði afgreitt marga viðskiptavini þennan fyrsta dag. “Bara
einn,” sagði drengurinn. Þetta fannst kaupfélagsstjóranum ekki mikið en
spurði hvað hann hefði selt fyrir mikið.
“Fimm milljónir eitthundrað níutíu og þrjúþúsund áttahundruð þrjátíu og
tvær krónur,” sagði afgreiðslumaðurinn.
“Fimm milljónir eitthundrað níutíu og þrjúþúsund áttahundruð þrjátíu og
tvær krónur,” endurtók kaupfélagsstjórinn rasandi hissa. “Hvað seldirðu
honum eiginlega?”
“Jú, sjáðu til,” sagði drengurinn, “fyrst seldi ég honum lítinn öngul,
síðan seldi ég honum miðlungsstóran öngul, þá stóran öngul, svo
veiðistöng og síðan spurði ég hann hvar hann ætlaði að veiða.
Hann sagðist ætla að veiða í vatninu og þá
sagði ég honum að hann þyrfti bát og seldi honum plastbát með 40
hestafla utanborðsmótor. Þá sagði maðurinn að hann gæti aldrei flutt
bátinn á Daihatsuinum sínum svo ég fór með hann í véladeildina og seldi
honum nýjan Landróver. ” Nú var andlitið hálfdottið af
kaupfélagsstjóranum og hann sagði: “Maðurinn kemur hér inn til að kaupa
einn lítinn öngul og þú selur honum bæði bát og bíl.” “Nei, nei,”
sagði strákurinn. “Hann kom hingað til að kaupa dömubindi handa konunni
sinni og ég sagði við hann að fyrst að helgin væri hvort eð er ónýt hjá
honum væri eins gott fyrir hann að fara að veiða!”