“drottinn minn gefðu dánum ró og hinum líkin sem lifa”.



“Hann giftist eftirlifandi eiginkonu sinni og átu þau tvö börn”.



“Gönuferðin þeirra varð styttri en menn vonuðu. Banvænn sjúkdómur beið hennar bak við stein og sló hana fljótt til jarðar”.



“Hún hafði það sterka skapgerð að smá rigningarsuddi setti hana ekki úr jafnvægi”.



“Hann var sannur íslendingur og dó á 17. júní”.



“Þrátt fyrir góða greind gekk hún aldrei í kvennfélag”.



“Það er löngu vitað mál að bestu og skemmtilegustu vinina eignast maður í lúðrasveitum”.



“Hann skrapp úr vinnunni til að fara í þrekpróf hjá Hjartavernd, en kom þaðan liðið lík”.



“Ég bið þann sem lífið gaf að hugga, styrkja og bæta aðstaðdendum skaðann”.



“Tók hann fráfall konu sinnar mjög nærri sér vegna barnanna”.



“þar voru m.a. María Rögnvaldsdóttir og Guðrún Sigurðardóttir frá Folafæti. Enda þótt María væri þá hálfslæm í fæti lék við hvern sinni fingur”.



“Helga lést þenna dag kl 16. Helga hafði ætlað að eyða deginum í annað”.



“Í dag kveðjum við kæran samstarfsmann og félaga. Hann tók sér tveggja daga frí til að kveðja þennan heim”.



“Og má segja að hún setti ekki svo skál af tvíbökum á borð að ekki stafaði af því mýkt og listfengi”.



“Orð þessi eru skrifuð til að bera Sveini (líkinu) kveðju og þakkir frá tengdafólki hans og ekki síður frá tengdamóður hans þótt nú nálgist 20. árið

frá fráfalli hennar”.



“Hún bjó manni sínum gott heimili og ól honum 9 hraust börn, þar af tvö á sjómannadaginn”.



“Ágústa giftist ekki og eignaðist ekki börn í venjulegum skilningi þess orðs”.