Hér eru nokkrar spurningar og svör sem birtust á upplýsingavef fyrir
ferðamenn sem stefna á ferð til Ástralíu:
SP: Er einhvern tímann rok í Ástralíu? Ég hef aldrei séð rigningu hjá
ykkur í sjónvarpinu, hvernig fara plönturnar að því að vaxa? (Bretland)
SV: Við flytjum inn fullvaxnar plöntur og sitjum svo og horfum á þær
drepast.
SP: Mun ég sjá kengúrur á vappi á götunum? (USA)
SV: Það fer eftir því hvað þú ert búinn að drekka mikið.
SP: Mig langar að ganga frá Perth til Sidney, get ég fylgt
járnbrautarteinunum? (Svíþjóð)
SV: Jú, jú, ekkert mál, það eru bara 3 þúsund mílur, taktu með þér slatta
af vatni.
SP: Það er mjög mikilvægt að ég fái lista yfir staði sem geta útvegað mér
uppstoppaðar skjaldbökur. (Ítalía)
SV: Ég held við séum ekkert að svara þessu.
SP: Eru hraðbankar í Ástralíu? Getur þú sent mér lista yfir þá í Brisbane,
Cairns, Townsville og Hervey Bay? (Bretland)
SV: Úr hverju dó seinasti þrællinn sem þú áttir?
SP: Getur þú gefið mér upplýsingar um flóðhestakappreiðar í Ástralíu?
(USA)
SV: A-frí-ka er stóra þríhyrnda heimsálfan sunnan við Evrópu, Ás-tra-lía
er stóra eyjan í miðju kyrra-hafinu og þar eru ekki… nei annars gleymdu
þessu. Flóðhestakappreiðarnar eru alltaf á þriðjudögum á Kings Kross. Komdu
nakinn.
SP: Í hvaða átt er norður í Ástralíu? (USA)
SV: Horfðu í suður og snúðu þér um 90 gráður. Hringdu í okkur þegar þú ert
búinn og við sendum þér afganginn af leiðbeiningunum.
SP: Má ég koma með hnífapör til Ástralíu? (Bretland)
SV: Til hvers? Notaðu bara puttana eins og við.
SP: Getur þú sent mér tónleikaskrána fyrir Vínardrengjakórinn? (USA)
SV: Ast-ur-ríki er litla landið við hliðina á Þýskalandi…. nei annars
gleymdu þessu. Vínardrengjakórinn kemur alltaf fram á þriðjudögum á Kings
Kross beint á eftir flóðhestakappreiðunum. Komdu nakinn.
SP: Er hægt að fá ilmvötn í Ástralíu? (Frakkland)
SV: Nei, það er ekki skítalykt af OKKUR.
SP: Ég hef fundið upp nýja vöru sem gefur þér eilífa æsku. Getur þú bent
mér á hvar ég get selt hana í Ástralíu? (USA)
SV: Þú getur selt þetta alls staðar þar sem margir Bandaríkjamenn eru
saman komnir.
SP: Get ég notað háhælaða skó í Ástralíu? (Bretland)
SV: Þú ert breskur pólitíkus, ekki satt?
SP: Getur þú sagt mér á hvaða stöðum í Tasmaníu konur eru í minnihluta?
(Ítalía)
SV: Jebb, á hommabörum.
SP: Haldið þið upp á jólin í Ástralíu? (Frakkland)
SV: Bara á jólunum.
SP: Eru verslanir í Sidney og er hægt að fá mjólk allan ársins hring?
(Þýskaland).
SV: Nei, við erum friðsælt samfélag flækingssafnara og veiðimanna. Mjólk
er ólögleg í Ástralíu.
SP: Vinsamlegast sendu mér lista yfir alla lækna sem geta útvegað móteitur
gegn skröltormabiti. (USA)
SV: Skröltormar lifa í Am-er-íku þar sem ÞÚ býrð. Allir ástralskir snákar
eru meinlausir og eru fínir sem gæludýr.
SP: Ég er með spurningu um fræga skepnu í Ástralíu en man ekki hvað hún
heitir. Það er svona bjarndýr sem býr í trjám. (USA)
SV: Þeir eru kallaðir detti-birnir. Það er af því að þeir láta sig detta
úr trjánum ofan á fólk og éta úr þeim heilann. Þú getur samt varist þetta
með því að hella yfir þig mannaþvagi, þá láta þeir þig í friði ef þú ert
úti að labba.
SP: Ég var í fríi í Ástralíu 1969 og mig langar að hitta stúlku sem ég var
með þá. Getur þú aðstoðað? (USA)
SV: Já, ekkert mál, en þú þarft áfram að borga henni fyrir klukkutímann.
SP: Get ég talað ensku á flestum stöðum í Ástralíu? (USA)
SV: Jamm, en þú verður að læra hana fyrst.
Brostu og heimurinn brosir til þín :), gráttu og þú verður blautur í framan…