“Þetta er alveg rosalegt,” sagði Jónas við vin sinn, Guðmund. “Lög í þessu landi eru bara það sem lögfræðingarnir segja!”
“Hvað áttu við?” spurði Guðmundur.
“Sjáðu til,” útskýrði Jónas. “Konan mín sótti um skilnað frá mér og gaf sem ástæðu að ég væri getulaus. Nú, ég fékk mér lögfræðing til að verja mig. Á sama tíma sakaði konan í næsta húsi mig um að vera faðir barnsins sem hún gengur með, svo ég þurfti að fá mér annan lögfræðing til að annast það mál.”
“Og hvað með það?” spurði Guðmundur.
“Jú,” sagði Jónas, “ég tapaði báðum málunum í gær!”
******************************************************************************************