Hann ákvað þá að söðla algjörlega um og læra eitthvað algjörlega nýtt fag. Hann fór í Borgarholtskóla og skráði sig í bifvélavirkjun. Læknirinn var þar í einhvern tíma og lauk sínu námi og að lokum tók hann sveinspróf í bifvélavirkjuninni.
Svo komu niðurstöður prófanna og kom þá í ljós að hann fékk 15 af 10 mögulegum. Fólk sem frétti þetta varð náttúrulega eitt stórt spurningamerki og fór að spyrjast fyrir um hvernig í ósköpunum gæti staðið á þessu.
Prófdómarinn kom þá með þessa skýringu: Prófið var tveir hlutar og gilti hvor um sig 50% af heildar einkunn. Fyrri hlutinn fólst í því að rífa í sundur vél, alveg í frumparta, hann gerði það án athugasemda og var þá kominn með 5. Seinni hlutinn var svo að setja vélina saman í upprunalegt horf, hann gerði það einnig án athugasemda og fékk hann 5 fyrir það og var þá kominn með 10. Þá spurði fólk afhverju hann hefði fengið 15. "Jú sjáið til við neyddumst til að gefa honum 5 í viðbót því að hann gerði þetta allt saman í gegnum púströrið!!
******************************************************************************************